Samvirkni | Heildar fyrirtækjaþjónusta | bókhaldskerfi, vefafritun, bókhald, hýsing, ársreikningur og kerfisleiga

Samvirkni hefur heildar lausnir fyrir smá og meðal stór fyrirtæki

Vefafritun

Samvirkni býður fyrirtækum og einstaklingum upp á vefafritun í gegnum Samafrit.  Í kerfisleigu Stólpa hjá Samvirkni er dagleg afritunartaka innifalin í samningnum. Hægt er að smella á linkinn Samafrit hér til hægri til að fá nánari upplýsingar um Samafrit. Þar er einnig hægt að skrá inn beiðni um afritunartöku rafrænt.

Samafrit
Með Samafriti eru gögn afrituð sjálfvirkt og geymd á öruggan hátt utan fyrirtækisins. Auðvelt er að endurheimta þau hvar og hvenær sem er í gegnum vafra.

Helsti kostir
  • Algjörlega sjálfvirkt, tekur afrit af gögnum á þeim tíma sem óskað er
  • Hægt er að endurheimta gögnin hratt og örugglega þegar þarf
  • Sparar kostnað við afritunarstöðvar, segulbönd og hugbúnað sem annars er óumflyjanlegur
  • Sparar þann tíma sem fer í umsýslu með afritun, eins og að skipta um spólur eða diska
Umhverfið
Samafrit er aðgengileg í þægilegu vefumhverfi. Gögnin eru dulkóðuð og þjöppuð og send gegnum Internetið með hámarksöryggi í hýsingarumhverfi Samafrits.
Samafrit heldur utan um afritunarsögu og er hægt að endurheimta skrár og möppur frá því í gær, síðustu viku eða fyrir 60 dögum síðan, eða allt að eitt ár aftur í tímann þegar þörf er á.
Samafrit vinnur bæði á þinni tölvu og á miðlurum kerfisins. Ef ekki er tekið afrit einhverra hluta vegna munstjórnkerfi Samafrits senda tilkynningu þess efnis til viðeigandi aðila.

 

Póstlistar

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning