Samvirkni | Heildar fyrirtækjaþjónusta | bókhaldskerfi, vefafritun, bókhald, hýsing, ársreikningur og kerfisleiga

Samvirkni hefur heildar lausnir fyrir smá og meðal stór fyrirtæki

SWYX IP símkerfi

Swyx hefur á síðustu árum orðið leiðandi í þróun og innleiðingu á IP símkerfum fyrir lítil sem stór fyrirtæki sem vilja nýta sér nýjustu símatækni sér til hagræðingar, bæði fjárhagslega og til að ná fram tímasparnaði.

Swyx símkerfin hafa hlaðið á sig verðlaunum undanfarna mánuði og á síðasta ári skaraði það fram úr öðrum helstu merkjum IP geirans (Alcatel, Avaya, Cisco) í viðamikilli samanburðarkönnun breska tímaritsins "What to Buy for Business" og hlaut þar "Best Buy" stimpilinn og fjórar stjörnur af fjórum mögulegum, á meðan helstu samkeppnisaðilar fengu falleinkunn eða 1 til 2 stjörnur. Það vekur sérstaka athygli að þrátt fyrir að Swyx fái þar hæstu verðlaun var Swyx lausnin sú ódýrasta í boði.

Með tilkomu alvöru IP símkerfis breytist grunn hugsunin í símamálum fyrirtækja og öll umsýsla verður auðveldari. Swyx viðmótið er byggt upp á Windows gluggaumhverfinu sem allir þekkja og tekur það því meðal starfsmann litla stund að tileinka sér og nýta aragrúa af möguleikum hins nýja símkerfis.

Swyx IP símkerfi henta sérstaklega vel fyrirtækjum sem eru með starfstöðvar á fleiri en einum stað eða eru með starfsmenn sem vinna heima við eða eru mikið á faraldsfæti þar sem öll samskipti fara fram á IP kerfinu og eru þar með kostnaðarlaus. Athygli vekur að með Swyx símkerfunum er enginn heyranlegur munur á hljómgæðum hvort sem hringt er yfir hefðbundnar símalínur eða IP kerfi sé notað.


Póstlistar

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning