Hægt er að fá nýtt greiningartól þróað af Svar tækni sem sýnir rauntíma upplýsingar um símsvörun fyrirtækja. Hugbúnaðurinn keyrir á vefsíðu sem hægt er að setja upp hvar sem er og er sýnileg á tölvum yfirmanna eða á stórum skjám þar sem allir í viðkomandi deild eða fyrirtæki geta fylgst með þróun mála. Á meðal þeirra upplýsinga sem koma fram er fjöldi símtala inn í fyrirtækið þann daginn og hversu mörgum símtölum var ekki svarað auk annarar tölfræði þar á bakvið.

Svar Que birtir upplýsingar um þá sem eru í biðröð eftir því að vera svarað. Hægt er að skoða þróunina aftur í tímann og fylgjast þannig með hvort símtölum fjölgi eða fækki og hvort hlutfall ósvaraðra símtala aukist eða minnki og bæta þannig símsvörun fyrirtækisins.


