Samvirkni | Heildar fyrirtækjaþjónusta | bókhaldskerfi, vefafritun, bókhald, hýsing, ársreikningur og kerfisleiga

Samvirkni hefur heildar lausnir fyrir smá og meðal stór fyrirtæki

Greiningartól SvarInfo

Hægt er að fá sérþróað fullvaxið greiningartól fyrir Swyx IP símkerfin, Svar Info. Með kerfinu er hægt að skoða nánast allt sem viðkemur notkun á símkerfinu, hver notar það mest, hver minnst og hvernig álag dreifist.

Kerfið er álagsmælir, sýnir svartíma og safnar upplýsingum um alla símanotkun fyrirtækisins. Hægt er að búa til fullkomnar skýrslur og láta kerfið senda þær sjálfkrafa á valin netföng. T.d. á klukkutíma fresti skýrslu yfir þau númer sem ekki náðu sambandi einnig daglegt/vikulegt/mánaðarlegt yfirlit yfir samantekna símanotkun o.fl.


Svar Info er upplýsingamiðill þeirra, sem vilja hafa yfirlit yfir þennan kostnaðarlið og hentar bæði stórum og smáum fyrirtækjum. Með lausninni má auðveldlega að ná tökum á símakostnað fyrirtækisins. Auk þess má stórbæta símsvörun og símaþjónustu með markmiðasetningum út frá þeim upplýsingum sem liggja fyrir í kerfinu. Hægt er að fá upplýsingar fram sem grafísk súlurit, lista á skjá eða skýrslu á prentara.

Póstlistar

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning