Fjárhagsbókhaldið auðveldar eftirlit með rekstri og útreikning á virðisaukaskatti og ársuppgjöri. Með
fjárhagsbókhaldinu fylgir rekstrar- og efnahagsreikningur, virðisaukaskattsuppgjör, Rsk 1.04 uppgjör og allt það sem prýðir gott
bókhaldskerfi. Tilbúnir bókhaldslyklar fylgja og auðvelt er að laga kerfið að þörfum hvers og eins. Þá býður kerfið
upp á fjárhagsáætlanir, frjálsa skráningu tilvísana sem hægt er að leita eftir og sjálfvirka dagbókarfærslur. Kerfið
gerir ráð fyrir deildaskiptingu, verkefnum og tilvísunum/málefnum með allt að 27 stafa bókhaldslykil.



