Samvirkni | Heildar fyrirtækjaþjónusta | bókhaldskerfi, vefafritun, bókhald, hýsing, ársreikningur og kerfisleiga

Samvirkni hefur heildar lausnir fyrir smá og meðal stór fyrirtæki

Bókhald og Launaútreikningar

Stólpi fyrir Windows
Samvirkni ehf. notast við viðskiptahugbúnaðinn Stólpa sem grunnkerfi starfseminnar og starfar í náinni samvinnu við Kerfisþróun ehf. um samþættingu bókhalds, uppgjörs og innleiðingu Stólpa fyrir önnur fyrirtæki. Stólpi er sveigjanlegt bókhalds- og upplýsingakerfi með lausnir fyrir flestar gerðir atvinnurekstrar. Með Stólpanum geta fyrirtæki valið um þau kerfi sem henta hverju sinni s.s. fjárhagsbókhald, launa,- sölu,- og viðskiptamannabókhald svo eitthvað sé nefnt. Einnig býður Stólpinn upp á sérsniðnar lausnir, viðbætur á kerfum síðar eða stækkun eftir þörfum.

Færsla bókhalds

Bókhaldssvið Samvirkni þjónustar stærri og smærri fyrirtæki sem nýta sér upplýsingakerfi Stólpa og veitir viðskiptavinum alla þá þjónustu sem lýtur að rekstrarhaldi fyrirtækja.
Samvirkni leggur áherslu á að bókhald sé fært jafnóðum m.a. til að auðvelda virðisaukaskil á tveggja mánaða fresti.

Launaútreikningar
Samvirkni tekur að sér að reikna út mánaðarlaun starfsmanna og ganga frá skilagreinum fyrir staðgreiðslu, lífeyrissjóð, orlof og félagsgjöld fyrir Stólpa notendur.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning