Samvirkni | Heildar fyrirtækjaþjónusta | bókhaldskerfi, vefafritun, bókhald, hýsing, ársreikningur og kerfisleiga

Samvirkni hefur heildar lausnir fyrir smá og meðal stór fyrirtæki

Birgðakerfi

Birgðakerfið heldur utan um allar stofnupplýsingar birgða og geta vörulýsingar verið eins nákvæmar og óskað er. Fjölbreyttir birgða- og verðlistar sem einnig má hanna að eigin vild. Hægt að sjá hreyfingar mörg ár aftur í tímann. Gert er ráð fyrir strikamerkjaskráningu við vörumóttöku, sölu- og birgðauppgjör. Kerfið getur haldið utan um marga lagera, birgja og tungumál. Þá er hægt að halda utan um sundurliðuð birgðauppgjör. Aðlaga má m.a. birgðalista og talningalista eftir staðsetningum. Í sölukerfinu er gert ráð fyrir að velja lager og einnig er hægt að vinna eftir deildarskiptingu þannig að viðkomandi lager er sjálfgefinn og hann einn sést á skjánum við gerð reikninga. Gerð hefur verið einföld vinnsla í sölukerfinu fyrir millilagerssölu sem venjulega þarf að gera með birgðaskráningu en hana má að sjálfsögðu einnig nota á hefðbundinn hátt. Hægt er að skrá uppskriftir í kerfið sem hentar t.d. fyrir sölu á tölvupakka þar sem skjár, lyklaborð og prentari fylgir. Við sölu fer rétt út af lager og framlegð deilist hlutfallslega rétt á allar vörur. Kerfið býður upp á að lesa inn rafræna reikninga frá birgjum. Þeir þurfa að uppfylla ákveðin skilyrði og getur Stólpi bæði lesið XML og EDI reikninga.

 

Póstlistar

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning